Undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 1. ágúst síðastliðinn tillögu oddvita þess efnis að heimila að farið verði í undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu um ákvörðun hreppsnefndar, sem þegar hefur verið samþykkt, og snýr að formlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð. Nokkrir íbúar höfðu áður farið fram á að slík undirskriftasöfnun færi fram. „Hreppsnefnd samþykkir einnig að undirskriftarsöfnun megi hefjast þann 14. ágúst nk. og megi standa til 11. september nk,“ segir í bókun sem hreppsnefnd samþykkti.

Undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu - Skessuhorn