
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk 2. ágúst síðastliðinn þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi. Fram kemur í tilkynningu frá Hafró að í þessum 33 daga leiðangri Árna kringum landið hafi verið teknar 65 togstöðvar og sigldar um 6000 sjómílur, eða 11 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.…Lesa meira








