Að störfum á vettvangi. Ljósm. Náttúrufræðistofnun

Sex umsóknir um forstjóra Náttúrufræðistofnunar

Í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýsti ráðuneytið embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar laust til umsóknar í byrjun júlí sl. Sex umsækjendur eru um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Þeir eru í starfrófsröð: Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, Guðmundur Þórðarson, samningamaður og sérfræðingur, Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi, Kristófer S. Arnar P. Júlíusson, líftæknir, María Ester Guðjónsdóttir, ferðamála- og viðskiptafræðingur og Rakel Rún Karlsdóttir, jarðfræðingur.

Sex umsóknir um forstjóra Náttúrufræðistofnunar - Skessuhorn