
Atvinnuleysi hækkaði á Vesturlandi í júlí
Í nýútgefinni skýrslu frá Vinnumálastofnun má sjá að skráð atvinnuleysi á landsvísu í júlí á þessu ári var 3,1% miðað við 2,8% í fyrra. Atvinnuleysi mælist mest á Suðurnesjum en minnst á Norðurlandi vestra og á Austurlandi. Atvinnuleysi hækkaði á einum stað á landinu frá júní, en það er á Vesturlandi þar sem atvinnuleysi fór úr 2,1% í 2,4% í júlí. Þar gætu uppsagnir í kjölfar gjaldþrots Skagans 3X átt hlut að máli.