
Rauðu punktarnir merkja nýjustu skjálftana sem voru síðdegis í gær. Til hægri er Langavatn, efst er Hítarvatn, neðsta vatnið er Grjótárvatn en mitt á milli þessara vatna er Háleiksvatn.
Ljósufjöll bæra á sér
Frá því á laugardaginn hafa mælst fjórtán jarðskjálftar yfir einn að stærð nærri Grjótárvatni, en það er upp af Mýrum; vestan við Langavatn en sunnan við Hítarvatn. Skjálftahrinan tengist eldfjallakerfi Ljósufjalla sem talið er virkt þrátt fyrir að þar hafi ekki gosið í 1100 ár. Ljósufjallareinin teygir sig frá Kolgrafafirði í vestri að Norðurá í Borgarfirði. Meðal þekktra hrauna á þessu svæði má nefna Berserkjahraun í Helgafellssveit og Grábrókarhraun í Norðurárdal. Sérfræðingar telja að þrátt fyrir þessa skjálfta nú sé ekkert sem bendi til þess að kvikusöfnun sé hafin og líklegast að skjálftarnir séu vegna spennulosunar. Sá stærsti var síðdegis í gær, 2,6 að stærð.