Björgunarskipið Jón Gunnlaugsson á Akranesi sem sigldi á vettvang í gærkvöldi. Ljósm. úr safni

Mannbjörg þegar seglbátur fór á hvolf

Klukkan 19:45 í gærkvöldi barst Neyðarlínunni skilaboð frá vegfarendum í landi um að báti hafi hvolft um 300 metra frá landi á Hvalfirði á móts við Hvammsvík - og að maður sæti á kili bátsins. Allir nærliggjandi viðbragðsaðilar voru ræstir út, meðal annarra sjóbjörgunarsveit Björgunarfélags Akraness. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang í hæsta forgangi. Manninum tókst sjálfum að komast í land en var blautur og hrakinn. Björgunaraðilar hlúðu að manninum en ákveðið var að senda hann með þyrlunni á sjúkrahús til frekari aðhlynningar. Um lítinn seglbát var að ræða.

Mannbjörg þegar seglbátur fór á hvolf - Skessuhorn