
Mynd frá hátíðarhöldunum árið 2023.
Hvalfjarðardagar haldnir víða um sveitina
Hátíðin Hvalfjarðardagar var fyrst haldin árið 2008 og hefur stækkað og þróast í gegnum árin. Skessuhorn náði tali á Andreu Ýr Arnarsdóttur oddvita Hvalfjarðarsveitar en hún er ein af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár. „Hátíðin hefur þróast mikið, hún byrjaði sem eins dags hátíð en er nú orðin hátíð með fjölbreyttri helgardagskrá,“ segir Andrea.