Fréttir

true

Þýskur stúlknakór syngur í Hallgrímskirkju

Á Hvalfjarðardögum um næstu helgi verða síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þýski stúlknakórinn Pfälzische Kurrende frá Neustadt/Weinstrasse er á tónleikaferð um Ísland 14.-18. ágúst. Kórinn er margverðlaunaður bæði í heimalandi sínu og í Evrópu. Kórinn syngur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 18. ágúst kl. 16.00. Stjórnandi kórsins er Carola Bischoff og organisti er Simon Reichert.…Lesa meira

true

Hólmarar fagna 30 ára afmæli Danskra daga

Skipuleggjendur bæjarhátíðarinnar Danskra daga í Stykkishólmi eru nú að leggja lokahönd á dagskrá hátíðarinnar í ár. Fyrsta hátíð Danskra daga var haldin árið 1994 og á hún því afmæli núna. Hátíðin í ár mun að mestu leyti höfða til íbúa Stykkishólms, brottfluttra íbúa og fjölskyldna. „Við sjáum þessa hátíð fyrir okkur þannig. Að íbúar geti…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan sigur á KH

KH og Skallagrímur mættust á laugardaginn í 14. umferð fjórðu deildar karla í knattspyrnu og var viðureignin á Valsvellinum við Hlíðarenda. Það var að duga eða drepast fyrir gestina því fyrir leik voru þeir næstneðstir og sex stigum frá öruggu sæti. Eftir 10-1 sigur á RB í lok júní hafði Skallagrímur spilað sex leiki þar…Lesa meira

true

Stórtap hjá Reyni gegn Uppsveitum

Reynir Hellissandi hefur ekki átt góðu gengi að fagna í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í sumar. Reynir hefur spilað 14 leiki af 16 og hefur aðeins unnið einn leik, gert þrjú jafntefli og tapað tíu og markatalan er 14:64. Eini sigurleikur liðsins kom í lok júní gegn Afríku sem er enn án…Lesa meira

true

Tvöfalt hestamannamót var haldið á Æðarodda – úrslit

Mótanefnd hestamannafélagsins Dreyra stóð fyrir tvöföldu móti um liðna helgi á Æðarodda þegar fram fór samhliða Íþróttamót Dreyra og Áhugamannamót Íslands. Þátttakendur voru hátt í 200 og komu víða af landinu. Á Áhugamannamóti Íslands áttu þátttökurétt allir sem náð hafa 22 ára aldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum fimm árum.…Lesa meira

true

Héldu stórt riffilmót í Kolgrafafirði

Um síðustu helgi hélt Skotfélag Snæfellsness eitt stærsta riffilmót sem haldið hefur verið hér á landi. Fór það fram á svæði félagsins í Kolgrafafirði. Að sögn Arnars Diego Ævarssonar, formanns skotfélagsins, nefndist mótið „Fossbúinn Challenge-PRS Match“. „Þetta gekk vel og við ætlum að reyna að gera þetta að árlegu móti og fá til okkar fleiri…Lesa meira

true

Nýr framkvæmdastjóri hjá KFÍA

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Knattspyrnufélagi ÍA, hefur sagt starfi sínu lausu vegna flutninga erlendis í lok tímabils. Þetta kemur fram í tilkynningu á FB síðu ÍA. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn til félagsins, Ingimar Elí Hlynsson. Ingimar Elí kemur frá Icelandair þar sem hann hefur starfað sem sölustjóri. Hann hefur lokið BS námi í…Lesa meira

true

Kári í toppsætinu eftir fjórða sigurinn í röð

Lið Kára frá Akranesi hefur farið mikinn síðustu vikurnar í þriðju deild karla í knattspyrnu. Frá því í byrjun júlí hafa þeir unnið sex leiki af sjö og gert eitt jafntefli og eru nú með sex stiga forskot á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir. Markatalan í þessum sjö leikjum er 21-3 og þeir…Lesa meira

true

Undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 1. ágúst síðastliðinn tillögu oddvita þess efnis að heimila að farið verði í undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu um ákvörðun hreppsnefndar, sem þegar hefur verið samþykkt, og snýr að formlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð. Nokkrir íbúar höfðu áður farið fram á að slík undirskriftasöfnun færi fram. „Hreppsnefnd samþykkir einnig að undirskriftarsöfnun…Lesa meira

true

Víkingur með nauman sigur á botnliðinu

Eftir tvo tapleiki í röð náði Víkingur Ólafsvík loks sigri í 2. deild karla í knattspyrnu þegar botnlið Reynis frá Sandgerði kom í heimsókn á Ólafsvíkurvöllinn á laugardaginn. Í síðustu umferð vann Reynir óvæntan sigur á KFA, 3-1, en fyrir þann leik hafði Reynir aðeins náð einum sigri í síðustu sjö leikjum. Heimamenn í Víkingi…Lesa meira