Fréttir

true

Skallagrímur sótti ekki stig til Eyja

Skallagrímur hélt til Vestmannaeyja í gær og spilaði þar gegn liði KFS, í 4. deild karla í knattspyrnu. Í fyrri leik liðanna í maí fóru Skallagrímsmenn með sigur af hólmi en bæði lið voru fyrir leikinn á sunnudaginn með sjö stig, í áttunda og níunda sæti deildarinnar. Því var þetta gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði…Lesa meira

true

Hoppað í sjóinn veður í Hólminum

Mikið líf og fjör var við Stykkishólmsbryggju á föstudaginn síðasta. Sólríkt var með eindæmum og ferðafólk víða í bænum. Ungmenni voru þá að hoppa í sjóinn frá Stykkinu, önnur köstuðu fyrir fisk en voru ekki komin með mikinn afla þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á veiðimennina. Ferðafólk var gangandi um Stykkishólm í dásamlegu veðri.Lesa meira

true

Víkingur vann toppslaginn

Það var toppslagur á Ólafsvíkurvelli í gær í 2. deildinni þegar Austfjarðarliðið KFA, sem var í öðru særi deildarinnar, mætti Víkingi sem var fyrir leikinn í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir KFA. Leikar fóru þannig að Víkingur sigraði 2:0 og endurheimti þar með annað sætið í deildinni. Austfirðingarnir byrjuðu betur í leiknum og áttu…Lesa meira

true

Aurskriða féll í Hítarvatn í miklu rigningunum

Í úrhellinu sem gerði um vestanvert landið dagana 12.-13. júlí síðastliðinn féll aurskriða í Hítarvatn. Að sögn Jóns Guðlaugs Guðbrandssonar var skriðan um 300 metra breið og féll um 460 metra niður fjallið og spýja úr henni alla leið út í vatn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Jón tók. Sauðfé hafði verið…Lesa meira

true

Gámar fyrir dekkjahótel N1 verða fluttir á Breið

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í liðinni viku að veita tímabundið stöðuleyfi fyrir fimm gáma á Breiðargötu 1A. Gámarnir eru geymslugámar fyrir dekk og eru í eigu N1. Fram kemur í fundargerð ráðsins að flytja á umrædda gáma af lóðinni Dalbraut 14 vegna brunahættu. „Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu byggingarfulltrúa um tímabundið…Lesa meira

true

Ný skýrsla um vöktun vegna áhrifa sjókvíaeldis

Áhrif strokulaxanna úr Kvígindisdal gætu enn átt eftir að koma í ljós Hafrannsóknastofnun hefur gefið út skýrslu sem ber heitið „Samantekt vöktunar vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna 2023.“ Þar kemur m.a. fram að samhliða auknu eldi á laxi í sjókvíum fylgi því áhætta sem talin er geta ógnað stöðu villtra laxastofna hér á landi,…Lesa meira

true

Bríet var á ferð um Vesturland

Söngkonan Bríet hélt tónleika á Vesturlandi í vikunni sem leið. Byrjaði ferð sína á Akranesi á miðvikudaginn en hélt síðan vestur á Snæfellsnes. Í Samkomuhúsinu í Grundarfirði var hún með tónleika á fimmtudaginn. Þar steig hún á svið ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara. Söngkonan lék á alls oddi og var…Lesa meira

true

Skagakonur réðu ekki við toppliðið

Efsta lið Lengjudeildarinnar, Austfjarðarliðið FHL (Fjarðabyggð/ Höttur / Leiknir) mætti á Akranes og vann öruggan sigur á Skagakonum í ÍA; 1:3 í Akraneshöllinni í gær. Eftir nokkuð jafnræði sem var með liðunum framan af leik skoraði FHL tvö mörk á á tveggja mínútna kafla. Fyrra markið kom þegar Samantha Rose Smith óð þá óáreitt upp…Lesa meira

true

Leggja inn endurnýjað tilboð í eignir Skagans 3X

Hópur fjárfesta, sem föstudaginn 12. júlí síðastliðinn lagði inn tilboð um kaup á eignum og rekstri þrotabús Skagans 3X á Akranesi, hefur nú sex dögum síðar lagt inn endurnýjað tilboð. Helgi Jóhannesson skiptastjóri þrotabúsins staðfestir í samtali við Skessuhorn að endurnýjað tilboð hafi borist og það sé í skoðun, en ekki væri á þessum tímapunkti…Lesa meira

true

Káramenn mæta Tindastóli í 8-liða úrslitum fótbolta.net mótsins

Dregð var í hádeginu í átta liða úrslit fóbolta.net mótsins í knattspyrnu, sem er bikarkeppni neðri deildar liða. Kári frá Akranesi tryggði sig í átta liða úrslitin með sigri gegn Magna frá Grenivík 1:0 sl. miðvikudag í leik sem fram fór í Akraneshöllinni. Þegar dregið var í 8-liða úrslitin lentu Káramenn aftur gegn liði af…Lesa meira