Skriðan náði alla leið út í vatn. Ljósmyndir: jgg

Aurskriða féll í Hítarvatn í miklu rigningunum

Í úrhellinu sem gerði um vestanvert landið dagana 12.-13. júlí síðastliðinn féll aurskriða í Hítarvatn. Að sögn Jóns Guðlaugs Guðbrandssonar var skriðan um 300 metra breið og féll um 460 metra niður fjallið og spýja úr henni alla leið út í vatn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Jón tók. Sauðfé hafði verið á beit í hlíðinni þegar skriðan féll. Að sögn Jóns fór Gísli Guðjónsson í Lækjarbug og náði að bjarga einhverjum þeirra úr skriðunni og þá sáu veiðimenn sem þarna voru a.m.k. eina dauða kind á floti í vatninu. Reiðgatan á Vatnshlíð er nú ófær.

Aurskriða féll í Hítarvatn í miklu rigningunum - Skessuhorn