Skaginn 3X hefur verið til húsa við Krókalón á Akranesi. Ljósm. mm

Leggja inn endurnýjað tilboð í eignir Skagans 3X

Hópur fjárfesta, sem föstudaginn 12. júlí síðastliðinn lagði inn tilboð um kaup á eignum og rekstri þrotabús Skagans 3X á Akranesi, hefur nú sex dögum síðar lagt inn endurnýjað tilboð. Helgi Jóhannesson skiptastjóri þrotabúsins staðfestir í samtali við Skessuhorn að endurnýjað tilboð hafi borist og það sé í skoðun, en ekki væri á þessum tímapunkti hægt að segja neitt um innihald þess né með hvaða hætti það er frábrugðið fyrra tilboði hópsins. Helgi fagnar áhuga fjárfesta enda hafi á undanförnum dögum borist nokkur tilboð í hluta af eignum og rekstri þrotabúsins og þau tilboð eins og önnur séu til skoðunar. Samkvæmt heimildum Skessuhorn er ætlun hópsins sem um ræðir að endurreisa rekstur hins fallna fyrirtækis á Akranesi og þá sé tilboðið nú sem áður háð því að fasteignir við Krókalón fáist keyptar.

Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi fagnar því að hreyfing sé á málinu. „Akraneskaupstaður hefur lagt þunga sinn í að tryggja endurreisn fyrirtækisins á Akranesi. Við bindum vonir við framgang viðræðna og niðurstaðan verði traustur grunnur að framtíð fyrirtækisins. Hér eru traustir aðilar sem horfa til lengri tíma og hagsmunir Akraneskaupstaðar eru að stuðla að slíkri niðurstöðu,“ segir Haraldur í samtali við Skessuhorn. Hann segir að verkefnið sé í senn flókið og erfitt. „Til lengri tíma eru horfur góðar fyrir framleiðslu fyrirtækisins, en til skemmri tíma er þetta mikil barátta. Við skulum ekki loka augunum fyrir því. En, mestu skiptir að verja grunn fyrirtækisins og skapa þannig tækifæri fyrir starfsfólk þess og viðspyrnan tryggð með því að halda saman öflugum hópi. Fólkið er það sem skiptir mestu máli, þekking þess og hæfileikar,“ segir Haraldur.