
default
Gámar fyrir dekkjahótel N1 verða fluttir á Breið
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í liðinni viku að veita tímabundið stöðuleyfi fyrir fimm gáma á Breiðargötu 1A. Gámarnir eru geymslugámar fyrir dekk og eru í eigu N1. Fram kemur í fundargerð ráðsins að flytja á umrædda gáma af lóðinni Dalbraut 14 vegna brunahættu. „Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu byggingarfulltrúa um tímabundið stöðuleyfi til áramóta 2024 fyrir fimm gáma á Breiðargötu 1A. Ráðið felur sviðstjóra frekari úrvinnslu málsins,“ segir í fundargerðinni.