Fréttir

true

Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskapar veðri

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan fór fram í Stykkishólmi laugardaginn 29. júní í blíðskaparveðri. Hátíðin hefur fest sig í sessi í Hólminum og setur hún hátíðlegan brag á annars fallegan bæ þegar áhugafólk af öllu landinu heimsækir bæjarfélagið í sínu fínasta pússi. Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla hefur veg og vanda að hátíðinni og hefur fóstrað hana frá fyrstu…Lesa meira

true

Gangstéttarviðhald í góðviðrinu

Veðrið var ljúft síðasta föstudag þegar verktakar í Grundarfirði voru að steypa nýja gangstétt meðfram Nesvegi. Það var kominn tími á endurnýjun en þessi gönguleið er mikið notuð enda liggur hún meðfram hafnarsvæðinu. Þarna fara þúsundir ferðamanna um þegar skemmtiferðaskipin leggjast að bryggju og svo að sjálfsögðu heimamenn sem og aðrir gestir.Lesa meira

true

Vegna rannsóknarhagsmuna var hrúts krafist

Nýlega úrskurðaði matvælaráðuneytið að bónda á Norðurlandi vestra væri skylt að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á riðuveiki. Fyrir lá að hann hafði haft samgang við riðuveika kind og gæti því hugsanlega verið smitberi. Eftir að riðutilfelli greindist í Miðfjarðarhólfi vorið 2023 fór fram smitrakning sem leiddi þetta í ljós. Eina leiðin…Lesa meira

true

Kordó með sumartónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Strengjakvartettinn KORDÓ kemur í heimsókn og spilar á sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 7. júlí klukkan 16. Nemendur í strengjaleik eru sérstaklega boðnir velkomnir án endurgjalds á þessa tónleika. Á tónleikunum leikur Kordo kvartettinn hið þekkta verk Mozarts „Eine kleine Nachtmusik,“ en auk þess leika þau kafla úr strengjakvartettum eftir Haydn, Mendelssohn, Grieg, Ravel…Lesa meira

true

Frábært andrúmsloft í Borgarnesi um liðna helgi – myndasyrpa

Veðurguðirnir ásamt íbúum og gestum Borgarness sáu til þess að andrúmsloftið á hátíðarhöldum Hinseginhátíðar og Brákarhátíðar var til fyrirmyndar. Hápunktur helgarinnar var gleðigangan sem fór úr Brákarey og endaði við Hjálmaklett. Þar var haldin hátíðardagskrá sem heppnaðist með eindæmum vel. Bærinn iðaði af lífi og voru jafnt Borgnesingar og gestir þeirra hæstánægðir með hátíðina. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Samstarf tveggja ríkisstofnana á sviði matvælarannsókna

Í dag undirrituðu Oddur Már Gunnarsson forstjóri Matís og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands samstarfssamning milli Matís og LbhÍ um samstarf til að auka þekkingu og bæta þjónustu á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu. Matís ohf. og Landbúnaðarháskóli Ísland eru bæði í eigu ríkisins. Samningurinn er um rannsóknasamstarf bæði í innlendum sem erlendum verkefnum og…Lesa meira

true

Takturinn sleginn að Írskum dögum

Fyrstu auglýstu dagskráratriði Írskra daga á Akranesi voru í gær, þriðjudag. Hátíðin er því sífellt að teygja sig yfir lengri tíma. Fyrst var það listakonan Tinna Royal sem opnaði í Einarsbúð sýninguna Tímana tvenna. Eins og Tinnu er von og vísa er afraksturinn í efnisvali og afurð áhugaverður og er fólk hvatt til að kíkja…Lesa meira

true

Lopapeysan fagnar 20 ára afmæli

Lopapeysan er að venju haldin á Írskum dögum á Akranesi fyrstu helgina í júlí. Í ár eru 20 ár síðan fyrsta Lopapeysan var haldin við Faxabraut og því verður allt lagt í sölurnar til að fagna afmælinu með virktum. Um er að ræða eina kvöldstund þar sem margt af helsta tónlistarfólki landsins mætir ásamt því…Lesa meira

true

Vestlendingar hefja í dag keppni á Norðurlandamóti

Norðurlandamót U-16 hjá stúlkum og drengjum í körfubolta hefst í dag en mótið fer fram í Kisakallio í Finnlandi. Í U16 stúlknaliði Íslands er m.a. að finna Öddu Sigríði Ásmundsdóttur úr Snæfelli en í U16 drengja liði Íslands eru tveir vestlenskir strákar, þeir Sturla Böðvarsson úr Snæfelli og Jón Árni Gylfason úr Skallagrími. Fyrsti leikur…Lesa meira

true

„Er enn að standa mig að því að reyna að blása á kertin“

Rætt við Birnu G. Konráðsdóttur sem er á batavegi eftir langvinn veikindi Það var á björtum og fallegum sumardegi í síðustu viku sem blaðamaður Skessuhorns brunaði á Hvanneyri. Erindið var að hitta að máli vaska 66 ára konu sem undanfarin ár hefur glímt við alvarleg veikindi. Birna Guðrún Konráðsdóttir býr ásamt Brynjari H. Sæmundssyni eiginmanni…Lesa meira