Félagarnir Atli og Júlli hjá Almennu umhverfisþjónustunni eru spekingslegir er þeir líta yfir framkvæmdasvæðið. Ljósm. tfk

Gangstéttarviðhald í góðviðrinu

Veðrið var ljúft síðasta föstudag þegar verktakar í Grundarfirði voru að steypa nýja gangstétt meðfram Nesvegi. Það var kominn tími á endurnýjun en þessi gönguleið er mikið notuð enda liggur hún meðfram hafnarsvæðinu. Þarna fara þúsundir ferðamanna um þegar skemmtiferðaskipin leggjast að bryggju og svo að sjálfsögðu heimamenn sem og aðrir gestir.

Gangstéttarviðhald í góðviðrinu - Skessuhorn