Gengið var í þjóðbúningum í Súgandisey. Ljósmyndir: Alberto Zaccarini

Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskapar veðri

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan fór fram í Stykkishólmi laugardaginn 29. júní í blíðskaparveðri. Hátíðin hefur fest sig í sessi í Hólminum og setur hún hátíðlegan brag á annars fallegan bæ þegar áhugafólk af öllu landinu heimsækir bæjarfélagið í sínu fínasta pússi. Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla hefur veg og vanda að hátíðinni og hefur fóstrað hana frá fyrstu tíð í Norska húsinu, elsta tvílyfta timburhúsi á Íslandi. Fyrsti þjóðbúningadagurinn í Norska húsinu var haldinn árið 2005 og nafnið Skotthúfan tekið upp árið 2014.

Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskapar veðri - Skessuhorn