
Samsett mynd: Matís
Samstarf tveggja ríkisstofnana á sviði matvælarannsókna
Í dag undirrituðu Oddur Már Gunnarsson forstjóri Matís og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands samstarfssamning milli Matís og LbhÍ um samstarf til að auka þekkingu og bæta þjónustu á sviði landbúnaðar og matvælaframleiðslu. Matís ohf. og Landbúnaðarháskóli Ísland eru bæði í eigu ríkisins. Samningurinn er um rannsóknasamstarf bæði í innlendum sem erlendum verkefnum og samstarf um tillögur og sérverkefni fyrir stjórnvöld á sviði landbúnaðar og matvæla.