Listaverkum Tinnu Royal haganlega fyrir komið fyrir í grænmetisborði Einarsbúðar. Ljósm. ki

Takturinn sleginn að Írskum dögum

Fyrstu auglýstu dagskráratriði Írskra daga á Akranesi voru í gær, þriðjudag. Hátíðin er því sífellt að teygja sig yfir lengri tíma. Fyrst var það listakonan Tinna Royal sem opnaði í Einarsbúð sýninguna Tímana tvenna. Eins og Tinnu er von og vísa er afraksturinn í efnisvali og afurð áhugaverður og er fólk hvatt til að kíkja í Einarsbúð á opnunartíma verslunarinnar á næstu dögum. Í gærkvöldi voru svo Írskir dagar keyrðir í gang í orðsins fyllstu. Þá var ekinn gamli rúnthringurinn í bænum og voru fjölmargir sem tóku þátt. Rúnturinn er þjóðþekkt fyrirbæri og höfðu viðmælendur Skessuhorns á orði að þrátt fyrir að bílarnir hefðu breyst væru göturnar enn þær sömu og upplifunin af að sitja í á rúntinum hafi fært fólk áratugi aftur í tímann og rifjað upp ljúfar minningar.

Takturinn sleginn að Írskum dögum - Skessuhorn