Bartjaldið býður upp á ferska drykki og þar verður hægt að setjast niður, hvíla lúnar partýlappir og safna orku fyrir framhaldið. Ljósm. vaks

Lopapeysan fagnar 20 ára afmæli

Lopapeysan er að venju haldin á Írskum dögum á Akranesi fyrstu helgina í júlí. Í ár eru 20 ár síðan fyrsta Lopapeysan var haldin við Faxabraut og því verður allt lagt í sölurnar til að fagna afmælinu með virktum. Um er að ræða eina kvöldstund þar sem margt af helsta tónlistarfólki landsins mætir ásamt því að boðið verður upp á alls konar afþreyingu. Dagskráin hefst á laugardaginn klukkan 19:30 við Akranesvöll þar sem einn stærsti brekkusöngur landsins í boði Club 71 fer fram sem Hreimur Örn Heimisson stjórnar að þessu sinni. Tónleikasvæði Lopapeysunnar verður opnað í framhaldi af því klukkan 20:45 og mun fyrsta atriðið stíga á svið klukkan 21:15.

Lopapeysan fagnar 20 ára afmæli - Skessuhorn