Kordó með sumartónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Strengjakvartettinn KORDÓ kemur í heimsókn og spilar á sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 7. júlí klukkan 16. Nemendur í strengjaleik eru sérstaklega boðnir velkomnir án endurgjalds á þessa tónleika. Á tónleikunum leikur Kordo kvartettinn hið þekkta verk Mozarts „Eine kleine Nachtmusik,“ en auk þess leika þau kafla úr strengjakvartettum eftir Haydn, Mendelssohn, Grieg, Ravel og Dvořák.