
Slökkvilið Borgarbyggðar, Neisti félag slökkviliðsmanna og Þórðargatan í Borgarnesi buðu upp á sápurennibraut. Ljósm. Jón Arnar Sigurþórsson.
Frábært andrúmsloft í Borgarnesi um liðna helgi – myndasyrpa
Veðurguðirnir ásamt íbúum og gestum Borgarness sáu til þess að andrúmsloftið á hátíðarhöldum Hinseginhátíðar og Brákarhátíðar var til fyrirmyndar. Hápunktur helgarinnar var gleðigangan sem fór úr Brákarey og endaði við Hjálmaklett. Þar var haldin hátíðardagskrá sem heppnaðist með eindæmum vel. Bærinn iðaði af lífi og voru jafnt Borgnesingar og gestir þeirra hæstánægðir með hátíðina. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá hátíðinni.