Fréttir

true

Ugla Stefanía efst í prófkjöri Pírata

Síðdegis í dag lauk rafrænu prófkjöri Pírata í öllum kjördæmum. Sjö voru í framboði í Norðvesturkjördæmi. Úrslit urðu þau að Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir varð efst. Í öðru sæti varð Sunna Einarsdóttir og Pétur Óli Þorvaldsson þriðji. Alls voru 582 atkvæði greidd í prófkjörinu í kjördæminu.Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er á morgun

Bleiki dagurinn er miðvikudaginn 23. október. Þá hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að vera bleikir – „fyrir okkur öll; bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.“ Félagið varpar fram ýmsum hugmyndum, svo sem að að hafa bleikt morgunkaffi eða…Lesa meira

true

Vinna hafin við útskolun á Grábrókarveitu

Í gær var byrjað að skola út aðveituæð Grábrókarveitu sem liggur frá dælustöðinni í Grábrókarhrauni við Bifröst og niður að Borgarnesi. Þessi útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulögninni. Með þessu á að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er til viðskiptavina. Búast…Lesa meira

true

Axel Guðni stóð sig vel á Norðurlandamótinu

Níu íslenskir keppendur tóku þátt á Norðurlandamótinu í ólympískum lyftingum í Runavík í Færeyjum um helgina. Tíu keppendur frá Íslandi voru skráðir á mótið en aðeins náðu níu að mæta til leiks í tæka tíð. Var það vegna óhagstæðra vinda í Færeyjum sem gerði keppendum erfitt fyrir að komast á mótsstað og tók ferðalagið hjá…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Vesturlandsslaginn í Borgarnesi

Skallagrímur í Borgarnesi og Snæfell í Stykkishólmi mættust í gær í 32ja liða úrslitum VÍS bikars karla í körfubolta, en spilað var í Fjósinu. Gestirnir úr Stykkishólmi komu mun grimmari til leiks og náðu fljótlega forystu. Heimamenn í Skallagrími virtust vera nokkuð þyngri í sínum skrefum, töpuðu sjö sinnum boltanum í fyrsta leikhluta og gestirnir…Lesa meira

true

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu er framundan

Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) fer fram um næstu helgi, dagana 25.-26. október. Hátíðin er nú haldin í tuttugasta skipti, með smá útúrsnúningi árin tvö sem covid geisaði, en þá var hún gerð rafræn eins og flest á þeim tíma. Árið 2005 var fyrsta hátíðin haldin en þá voru haldnar hrútasýningar í sitt…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum eftir tap gegn Stólunum

ÍA og Tindastóll mættust í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum enda var stúkan þétt setin með yfir þrjú hundruð áhorfendum og stemningin eins og best var á kosið. Heimamenn byrjuðu af krafti og komust í 22:15 eftir rúman sex mínútna leik.…Lesa meira

true

Töluvert eignatjón í umferðinni

Níu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið og mörg þeirra tengd hálku sem myndaðist í liðinni viku. Ekki urðu alvarleg slys á fólki í þessum óhöppum en mikið eignatjón. Bílvelta varð á Vesturlandsvegi norðan Borgarness en ekki urðu slys á fólki. Bifreið hafnaði út í skurði nærri Melahverfi án slys á fólki.…Lesa meira

true

Sóknaráætlun nú í opnu kynningarferli á Samráðsgátt

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa nú fengið aðgang að samráðsgátt ríkisins til að kynna drög að Sóknaráætlun Vesturlands 2025-2029. Nú er áætlunin því komin í opið samráðsferli til 15. nóvember. Allir geta sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald. Sóknaráætlun Vesturlands er fimm ára áætlun sem er ætlað að vera leiðarljós…Lesa meira

true

Óhöpp í umferðinni þegar fyrsti snjórinn féll

Í gær snjóaði talsvert í uppsveitum Borgarfjarðar með versnandi færð. Í gærkvöldi kyngdi niður snjó og var hann t.d. um 15 cm þykkur á Hvanneyri og nágrenni. Bílar eru margir enn á sumardekkjunum. Einhver óhöpp urðu af þessum sökum. Seint í gærkvöldi fór fólksbíll útaf Borgarfjarðarbraut neðan við Litla-Kropp í Flókadal, hafnaði á hjólunum og…Lesa meira