
Það mátti sjá margar flottar lopapeysur á viðburðum sauðfjárbænda í Dölum á síðustu hausthátíð. Sumar vísuðu til bæjarnúmers en aðrar með hreinum og beinum starfstitlum. Ljósm. sla
Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu er framundan
Árlegur haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) fer fram um næstu helgi, dagana 25.-26. október. Hátíðin er nú haldin í tuttugasta skipti, með smá útúrsnúningi árin tvö sem covid geisaði, en þá var hún gerð rafræn eins og flest á þeim tíma. Árið 2005 var fyrsta hátíðin haldin en þá voru haldnar hrútasýningar í sitt hvoru varnarhólfinu, verðlaunaafhending og grill. Síðan þá hefur þessi litla hugmynd undið heldur betur upp á sig og breyst í heljarinnar tveggja daga hátíð þar sem boðið er uppá ýmisleg skemmtilegheit.