
Ugla Stefanía efst í prófkjöri Pírata
Síðdegis í dag lauk rafrænu prófkjöri Pírata í öllum kjördæmum. Sjö voru í framboði í Norðvesturkjördæmi. Úrslit urðu þau að Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir varð efst. Í öðru sæti varð Sunna Einarsdóttir og Pétur Óli Þorvaldsson þriðji. Alls voru 582 atkvæði greidd í prófkjörinu í kjördæminu.