
Af vettvangi áreksturs á Grímsárbrú við Fossatún í gær.
Óhöpp í umferðinni þegar fyrsti snjórinn féll
Í gær snjóaði talsvert í uppsveitum Borgarfjarðar með versnandi færð. Í gærkvöldi kyngdi niður snjó og var hann t.d. um 15 cm þykkur á Hvanneyri og nágrenni. Bílar eru margir enn á sumardekkjunum. Einhver óhöpp urðu af þessum sökum. Seint í gærkvöldi fór fólksbíll útaf Borgarfjarðarbraut neðan við Litla-Kropp í Flókadal, hafnaði á hjólunum og engan sakaði. Fyrir hádegið í gær varð árekstur á Grímsárbrú við Fossatún. Fólksbifreið „flaut upp“ og lenti á framhorni vörubifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaður vörubifreiðar sá í hvað stefndi og færði bifreið sína sem næst vegriði og hægði ferðina en gat þó ekki afstýrt árekstri. Ekki urðu meiðsli á fólki, en bílarnir báðir nokkuð skemmdir.