Vinna hafin við útskolun á Grábrókarveitu

Í gær var byrjað að skola út aðveituæð Grábrókarveitu sem liggur frá dælustöðinni í Grábrókarhrauni við Bifröst og niður að Borgarnesi. Þessi útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulögninni. Með þessu á að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er til viðskiptavina. Búast má við að verkið taki rúmar tvær vikur frá 21. október til 5. nóvember. 

Vinna hafin við útskolun á Grábrókarveitu - Skessuhorn