
Bleiki dagurinn er á morgun
Bleiki dagurinn er miðvikudaginn 23. október. Þá hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að vera bleikir – „fyrir okkur öll; bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.“ Félagið varpar fram ýmsum hugmyndum, svo sem að að hafa bleikt morgunkaffi eða hádegisverð, skreyta vinnustaðinn, klæðast einhverju bleiku eða veita verðlaun fyrir fatnað og skreytingar.
"Við hvetjum alla til að senda okkur skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og munum við birta þær hjá okkur á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan ," segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.
