Fréttir

true

Skorradalshreppur boðar til íbúafundar vegna sameiningarmála

Mánudaginn 29. janúar næstkomandi klukkan 19:30 hafa íbúar í Skorradalshreppi verið boðaðir á fund í félagsheimilinu Brún. „Á fundinum gefst íbúum tækifæri til skoðanaskipta um sameiningarmál, sem og tillagna og fyrirspurna til hreppsnefndarfólks um sýn þeirra á fýsileika sameiningar við önnur sveitarfélög. Til fundarins er boðað með 10 daga fyrirvara í samræmi við 108. gr.…Lesa meira

true

Fjöldi lóða í Borgarbyggð tilbúnar til úthlutunar

Í nýlegri færslu á upplýsingasíðu Borgarbyggðar kemur fram að það er byggðarráð, í umboði sveitarstjórnar, sem annast úthlutun byggingalóða í sveitarfélaginu. Þar má nú finna samantekinn lista yfir allar lausar lóðir sem tilbúnar eru til úthlutunar í þéttbýli í sveitarfélaginu og eru alls 63 lóðir tilgreindar. Þær skiptast þannig; 36 atvinnuhúsalóðir, 14 einbýlishúsalóðir, sex raðhúsalóðir,…Lesa meira

true

Feðgarnir Jón og Stefán eru Skagamenn ársins

Þorrablót Skagamanna fór fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum í gærkvöldi, en það var að þessu sinni í umsjón árgangs 1979. Uppselt var á blótið en einnig var hægt að kaupa miða í streymi og mæta á dansleik eftir að borðhaldi og skemmtiatriðum lauk. Veislustjórar voru Katrín Halldóra og Halli Melló og fóru þau á kostum.…Lesa meira

true

Skessuhornið má nota á ýmsan hátt

Þegar lítil tveggja ára ömmu- og afastelpa kom í heimsókn til blaðamanns á dögunum var það hennar fyrsta verk eins og oft áður að sturta úr dótakassanum og leika sér með dótið. Þar voru tvær dúkkur sem þurfti að huga að og það kom að því að þær tækju sér smá fegurðarblund. Engar nothæfar sængur…Lesa meira

true

Fjölmennt Mannamót landshlutanna – myndasyrpa

Góð mæting og ágæt stemning var á Mannamóti landshlutanna sem haldið var í Kórnum í Kópavogi í gær. Það eru markaðsstofur landshlutanna sem standa fyrir Mannamóti, en þangað er m.a. boðið starfsfólki ferðaskrifstofa, hótela, ráðamanna, fjölmiðla og annarra sem vilja kynna sér það sem efst er á baugi og nýjungar á vettvangi ferðaþjónustu á landsbyggðinni.…Lesa meira

true

Skórnir upp í hillu hjá Indriða Áka

Indriði Áki Þorláksson hefur tilkynnt að hann sé búinn að ákveða að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Indriði Áki er 28 ára miðjumaður sem hefur á ferli sínum spilað með ÍA, Val, Leikni, FH, Fram, Keflavík, Haukum, Kára og Víkingi Ólafsvík . Indriði var í lykilhlutverki þegar ÍA vann Lengjudeildina í fyrra og tryggði sér með…Lesa meira

true

Erlend netverslun aldrei meiri

Erlend netverslun hefur aldrei mælst meiri síðan Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að safna saman gögnum um þessa leiði Íslendinga til að kaupa vörur. Nýjar tölur fyrir nóvember 2023 sýna að Íslendingar eyddu 3,07 milljörðum króna í erlenda netverslun. Það er hækkun um 25,9% á milli ára. Netverslun innanlands í sama mánuði nam tæpum 18 milljörðum króna.…Lesa meira

true

Verðlaunahafar þróa sementslaust steinlím

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunin hlutu Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson fyrir verkefnið „Umhverfisvænt sementslaust AlSiment steinlím“. Báðir eru þeir meistaranemar; Heiðar Snær í efnaverkfræði við DTU Tækniháskólann í Danmörku en Gonzalo nemur jarðhitaverkfræði við Háskóla Íslands. Verðlaunaverkefnið sýnir fram á fýsileika þess að…Lesa meira

true

Skafrenningur í kvöld og hvasst við Hafnarfjall og á Kjalarnesi

Veðurstofan spáir austlægri átt 5-13 m/s í dag og dálítil él verða á víð og dreif. Frost 4 til 15 stig. Vaxandi austanátt sunnantil á landinu eftir hádegi og hlýnar, 15-23 þar í kvöld með snjókomu eða slyddu. Snjókoma eða slydda verður með köflum víða um land í nótt og dregur úr vindi. Á morgun…Lesa meira

true

Skagamenn komu til baka og náðu góðum sigri

ÍA og Þróttur Vogum mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Það gekk ekki vel hjá heimamönnum í byrjun leiks því eftir að hafa skorað fyrstu körfu leiksins þá komust þeir ekki á blað í næstum fjórar mínútur og stigataflan sýndi eitthvað kunnuglegt úr fortíðinni, staðan…Lesa meira