
Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni
Skafrenningur í kvöld og hvasst við Hafnarfjall og á Kjalarnesi
Veðurstofan spáir austlægri átt 5-13 m/s í dag og dálítil él verða á víð og dreif. Frost 4 til 15 stig. Vaxandi austanátt sunnantil á landinu eftir hádegi og hlýnar, 15-23 þar í kvöld með snjókomu eða slyddu. Snjókoma eða slydda verður með köflum víða um land í nótt og dregur úr vindi. Á morgun snýst svo í suðvestan 3-10 m/sek og styttir víða upp, en áfram él norðantil. Hiti kringum frostmark.
Vegagerðin bendir á að við Hafnarfjall og á Kjalarnesi verða vindhviður um 35 m/s eftir klukkan 21 í kvöld. Nýsnævið skefur þá víða suðvestantil á landinu og því mögulega blint til aksturs í skafrenningi.