
Fulltrúar Sker restaurant í Ólafsvík brosa til ljósmyndara. Texti og myndir: mm
Fjölmennt Mannamót landshlutanna – myndasyrpa
Góð mæting og ágæt stemning var á Mannamóti landshlutanna sem haldið var í Kórnum í Kópavogi í gær. Það eru markaðsstofur landshlutanna sem standa fyrir Mannamóti, en þangað er m.a. boðið starfsfólki ferðaskrifstofa, hótela, ráðamanna, fjölmiðla og annarra sem vilja kynna sér það sem efst er á baugi og nýjungar á vettvangi ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Að þessu sinni voru fulltrúar á fjórða hundrað fyrirtækja í ferðaþjónustu sem kynntu starfsemi sína, þar af 40 frá Vesturlandi.