Fréttir

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét keppa í Idol í kvöld

Annar þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19. Uppselt er í sal á annað  úrslitakvöldið eins og það fyrsta en um 500 manns komast að í salnum. Þema kvöldsins í þættinum í kvöld er 80’s lög eða lög frá…Lesa meira

true

Skortur á upplýsingum leiðir til að fella má færri hreindýr

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2024 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. „Alls verður heimilt að veiða 800 hreindýr á veiðitímanum; 397 kýr og 403 tarfa. Þetta er 101 hreindýrum færra en á liðnu ári sem stafar fyrst og fremst af skorti á gögnum um…Lesa meira

true

Ákveðin ábyrgð að bera út blöð

Rætt við blaðburðarmömmuna Guðrúnu S. Gísladóttur Blaðburðarbörn eru hverju blaði nauðsynleg. Þau sinna starfi sínu af kostgæfni hvernig sem viðrar allan ársins hring. Guðrún S. Gísladóttir á Akranesi er sannkölluð blaðburðarmamma því þrjú af fjórum börnum hennar hafa borið út Skessuhorn samfellt í rúmlega 16 ár eða frá árinu 2007 og lengst af báru þau…Lesa meira

true

Fundur ráðgerður í Borgarnesi um framtíðarsýn í málefni innflytjenda

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu. Ráðuneytið býður því til samtals hringinn…Lesa meira

true

Brunavarnaáætlun Stykkishólms uppfærð

Skömmu fyrir jól var brunavarnaáætlun Brunavarna Stykkishólms og nágrennis undirrituð af slökkviliðsstjóra, sveitarstjóra og forstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Fram kemur á vef Sveitarfélagsins Stykkishólms að markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði…Lesa meira

true

Gervigreind í námi vandmeðfarin

Notkun gervigreindar í námi og starfi er nú víða í umræðunni. Í skilaboðum Háskóla Íslands til nemenda er sérstaklega varað við notkun hennar við úrvinnslu verkefna, enda þurfi hún að uppfylla kröfur hans bæði frá tæknilegu og siðferðilegu sjónarhorni. Skólinn er með sérstaka upplýsingasíðu um gervigreind. Þar er m.a. kveðið á um að um notkun…Lesa meira

true

Flugáhuginn vaknaði snemma

Rætt við atvinnuflugmanninn Ástþór Ými hjá Icelandair Skagamaðurinn Ástþór Ýmir Alexandersson hefur síðasta árið starfað sem flugmaður hjá Icelandair í innanlandsfluginu. Áður starfaði hann hjá Ryanair og gerði út frá Dublin. Ástþór segir að áhugi fyrir flugi og flugvélum hefði byrjað snemma. „Eftir því sem foreldrar mínar sögðu mér þá varð ég mjög ungur áhugasamur…Lesa meira

true

Gunni Hó vann sigur í Plastdeildinni í pílu

Hátt í 200 manns tóku þátt í 1. umferð ÍPS deildarinnar sem haldin var á Bullseye og í aðstöðu Píludeildar Þórs síðasta sunnudag. Var þetta stærsta mót sem Íslenska Pílukastsambandið hefur haldið frá því það var stofnað. Samtals var keppt í 24 deildum, 16 í RVK og 8 á Akureyri og ljóst er að íþróttin…Lesa meira

true

Klæddu sig upp fyrir EM

Kennarar og stuðningsfulltrúi 7. bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi klæddu sig upp á dögunum í tilefni þess að fyrsti leikur Íslands var á EM í handbolta. Þá mátti sjá fleiri bláklædda á sveimi um skólann af sama tilefni.Lesa meira

true

Nokkrir ökumenn höfnuðu utan vegar

Ýmis umferðarmál komu upp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Alvarlegast var harður árekstur sem varð að morgni þriðjudags á hringveginum skammt frá Hvalfjarðarvegi þar sem ökumaður fólksbíls lést og annar slasaðist eftir árekstur við flutningabíl. Þá óskaði ökumaður eftir aðstoð í vikunni sem leið eftir að hafa hafnað utan vegar nærri Bröttubrekku.…Lesa meira