
Hver verður næsta Idolstjarna Íslands? Jóna Margrét er önnur frá hægri í efri röð og Björgvin Þór er í fremri röð. Ljósm. Stöð2
Björgvin Þór og Jóna Margrét keppa í Idol í kvöld
Annar þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19. Uppselt er í sal á annað úrslitakvöldið eins og það fyrsta en um 500 manns komast að í salnum. Þema kvöldsins í þættinum í kvöld er 80’s lög eða lög frá níunda áratugnum.