Gunni Hó með verðlaunin sín. Ljósm. dart.is

Gunni Hó vann sigur í Plastdeildinni í pílu

Hátt í 200 manns tóku þátt í 1. umferð ÍPS deildarinnar sem haldin var á Bullseye og í aðstöðu Píludeildar Þórs síðasta sunnudag. Var þetta stærsta mót sem Íslenska Pílukastsambandið hefur haldið frá því það var stofnað. Samtals var keppt í 24 deildum, 16 í RVK og 8 á Akureyri og ljóst er að íþróttin heldur áfram að vaxa og dafna.