Fréttir

true

Úlfur, úlfur á fjalirnar í Grundaskóla

Söngleikurinn Úlfur, úlfur verður frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi föstudaginn 26. janúar næstkomandi. Höfundar verksins eru þeir Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson. Söngleikurinn var síðast sýndur árið 2015 og var þá færður upp í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri sýningarinnar og Flosi Einarsson tónlistarstjóri. Einar segir að þetta sé fjórða árið í…Lesa meira

true

Dalabyggð bregst við tilmælum um bréfpoka fyrir lífrænan úrgang

Byggðarráð Dalabyggðar fjallaði um sorphirðu á fundi í síðustu viku. Eins og flestum er kunnugt hefur Gámafélagið breytt fyrirkomulagi við söfnun matarleifa og kveður á um að í stað maíspoka verði notaðir bréfpokar. Ráðið samþykkti að styðja við það fyrirkomulag enda sé það að verða ráðandi á landinu og er umhverfisvænni leið. Lífrænn úrgangur í…Lesa meira

true

„Ég þroskaðist fljótt og fannst oft aðrir vanþakklátir með sitt“

Rætt við Díönu Ósk sem í haust tók við starfi verslunarstjóra Olís í Borgarnesi Díana Ósk Heiðarsdóttir tók nýlega við sem verslunarstjóri á Olís stöðinni við brúarsporðinn í Borgarnesi. Hún býr á Akranesi en er úr Dölunum og kann vel við að starfa í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns hitti hana á vinnustað og spjallaði við hana…Lesa meira

true

Engir símar í Heiðarskóla

Í nóvember á síðasta ári var ákveðið að Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit myndi prófa að vera símalaus skóli þann mánuðinn. Nemendur fengu val um að skilja farsímann eftir heima eða afhenda hann við komu í skólann og fá hann aftur fyrir heimferð. Gekk það vonum framar og í samráði við nemendur var ákveðið að halda áfram…Lesa meira

true

Kynntu sér starf Brunavarna Árnessýslu

Undanfarna mánuði hefur verið starfandi vinnuhópur á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem hefur það verkefni að kanna aukið samstarf slökkviliða á Vesturlandi. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá sveitarfélögunum á Vesturlandi en Ragnar Sæmundsson bæjarfulltrúi á Akranesi er formaður hópsins. Á vef SSV er greint frá því að í síðustu viku heimsótti hópurinn, ásamt slökkviliðsstjórum…Lesa meira

true

Komu í heimsókn í stofnanir sveitarfélagsins

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar heimsótti nokkrar af stofnunum Snæfellsbæjar í síðustu viku og stefnt er að því að heimsækja þær stofnanir sem eftir eru í byrjun febrúar. Fram kemur á vefsíðu bæjarins að í þessari lotu voru heimsóttir leikskólarnir Krílakot og Kríuból og grunnskólahúsnæði á Hellissandi, Ólafsvík og Lýsuhóli. Einnig Dvalarheimilið Jaðar og íþróttamannvirkin, þ.e. sundlaugin í…Lesa meira

true

Kyngir niður snjó og búast má við truflun á samgöngum

Í kvöld og nótt gengur lægð inn á vestan- og suðvestanvert landið með talsverðri snjókomu. Veðurstofan gefur út gula viðvörun vegna þessa sem gildir frá miðnætti í kvöld og fram á morgundaginn. Fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa segir að; „talsverð snjókoma með takmörkuðu eða lélegu skyggni. Búast má við versnandi akstursskilirðum og afmörkuðum samgöngutruflunum.“Lesa meira

true

Hafna ósk Hopplands um bætta aðstöðu

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var tekin fyrir umsókn Hopplands ehf. um bætta aðstöðu við bryggjuna við endann á Bakkatúni á Akranesi. Þar voru reistir sjódýfingapallar fyrir tveimur árum síðan og hefur fyrirtækið Hoppland verið með starfsemi þar yfir sumartímann bæði árin. Fram kemur í fundargerð að skipulags- og umhverfisráð geti því…Lesa meira

true

Fresta því að gera grundvallar breytingar á búvörusamningum

Ekki verða gerðar grundvallarbreytingar á búvörusamningum milli Bændasamtaka Íslands og ríkisins að svo stöddu, samkvæmt samkomulagi sem undirritað hefur verið. Helstu breytingar nú eru þær að hægt verður á niðurtröppun greiðslumarks í sauðfjárrækt sem helst þannig óbreytt frá árinu 2024 og út gildistíma samninga eða til 31. desember 2026. Þá eru gerðar minni háttar breytingar…Lesa meira

true

Búast má við útblástursmengun eftir endurgangsetningu

Endurbótum á ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðju Elkem á Grundartanga er nú lokið og verður ofninn endurræstur í lok þessa mánaðar; „nema til frekari skerðingar af hendi Landsvirkjunar komi,“ segir í tilkynningu frá Elkem Ísland á vef fyrirtækisins. Ofninn er sá stærsti af þremur í verksmiðjunni og hefur nær allur búnaður hans verið uppfærður. Gera áætlanir ráð…Lesa meira