Frá Búðardal. Ljósm. gj.

Dalabyggð bregst við tilmælum um bréfpoka fyrir lífrænan úrgang

Byggðarráð Dalabyggðar fjallaði um sorphirðu á fundi í síðustu viku. Eins og flestum er kunnugt hefur Gámafélagið breytt fyrirkomulagi við söfnun matarleifa og kveður á um að í stað maíspoka verði notaðir bréfpokar. Ráðið samþykkti að styðja við það fyrirkomulag enda sé það að verða ráðandi á landinu og er umhverfisvænni leið. Lífrænn úrgangur í sveitarfélaginu verður því framvegis flokkaður í bréfpoka í stað maíspoka og þar til gerðri körfu verður útdeilt á öll heimili ásamt búnti af bréfpokum og leiðbeiningabæklingi til að auðvelda íbúum breytingarnar.

Dalabyggð bregst við tilmælum um bréfpoka fyrir lífrænan úrgang - Skessuhorn