Mynd frá æfingu. Ljósm. FB síða Grundaskóla

Úlfur, úlfur á fjalirnar í Grundaskóla

Söngleikurinn Úlfur, úlfur verður frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi föstudaginn 26. janúar næstkomandi. Höfundar verksins eru þeir Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson. Söngleikurinn var síðast sýndur árið 2015 og var þá færður upp í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri sýningarinnar og Flosi Einarsson tónlistarstjóri. Einar segir að þetta sé fjórða árið í röð sem 10. bekkur sýnir lokaverkefni sitt í Grundaskóla og allir nemendur taka þátt í sýningunni á einn eða annan hátt. Þá koma kennarar og starfsfólk í 10. bekk einnig mikið að þessari vinnu. „ Í ár er nemendafjöldinn um sjötíu og ætla fimmtíu nemendur að stíga á svið. Fyrstu skrefin í undirbúningnum voru tekin fyrir jól og síðan höfum við mjakað okkur meira og meira inn í þetta verkefni og eftir jólafrí verið á fullri ferð. Við munum æfa af fullum krafti fram að frumsýningu og vonandi tekst vel til hjá okkur.“

Úlfur, úlfur á fjalirnar í Grundaskóla - Skessuhorn