
Kyngir niður snjó og búast má við truflun á samgöngum
Í kvöld og nótt gengur lægð inn á vestan- og suðvestanvert landið með talsverðri snjókomu. Veðurstofan gefur út gula viðvörun vegna þessa sem gildir frá miðnætti í kvöld og fram á morgundaginn. Fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa segir að; „talsverð snjókoma með takmörkuðu eða lélegu skyggni. Búast má við versnandi akstursskilirðum og afmörkuðum samgöngutruflunum.“