Fréttir

true

Starfsmenn þriggja háskóladeilda á Akureyri mótfallnir sameiningu við Háskólann á Bifröst

Akademískir starfsmenn þeirra þriggja deilda við Háskólann á Akureyri, sem sameining við Háskólann á Bifröst hefði mest áhrif á, lýsa miklum efasemdum um sameiningu og hvernig staðið er að málum. Skýrsla um mat á fýsileika sameiningar háskólanna er harðlega gagnrýnd. Það er fréttavefurinn akureyri.net sem greinir frá óánægju starfsmanna skólans. Vísað er til ályktana sem…Lesa meira

true

Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir í þágu Grindvíkinga

Ríkisstjórnin kynnti í dag áform um aðgerðir sem miða að því að skapa forsendur fyrir öruggari framtíð fyrir Grindvíkinga og eyða óvissu þeirra vegna fordæmalausra aðstæðna. Aðgerðirnar snúa að því að gera Grindvíkingum kleift að koma sér upp öruggu heimili, tryggja örugga afkomu og aðstoð við að bjarga verðmætum. Markmið aðgerðanna eru eftirfarandi: Örugg heimili…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Selfoss en tap hjá Snæfelli

Skallagrímur og Selfoss áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta, liðin skiptust á að ná forystu en Skallagrímur leiddi með sex stigum við lok hans, 24:18. Heimamenn juku við forskotið í öðrum leikhluta og náðu mest tólf…Lesa meira

true

Sexan stuttmyndakeppni 2024 er hafin

Fræðsluverkefni sem ber nafnið Sexan er á vegum Neyðarlínunnar. Um er að ræða stuttmyndakeppni fyrir nemendur í 7. bekk á landsvísu, til að fræða þau um stafrænt ofbeldi. „Krakkar í 7. bekk eiga semsagt að búa til þriggja mínútna stuttmynd um samþykki, nektarmynd, tælingu eða slagsmál ungmenna og skila inn til Neyðarlínunnar fyrir sunnudaginn 28.…Lesa meira

true

Vilja fella afleggjarann að Jarðlangsstöðum af vegaskrá

Vegagerðin hefur tilkynnt Borgarbyggð að til standi að taka Stangarholtsveg á Mýrum (5345-01) af vegaskrá. Samkvæmt vegaskrá er þessi hluti Stangarholtsvegar afleggjarinn að bænum Jarðlangsstöðum, að undanskildum síðustu 50 metrunum að íbúðarhúsinu á bænum. Um er að ræða nokkra tugi metra. Bendir Vegagerðin á í erindi sínu að héraðsvegir eru skilgreindir sem vegir sem liggja…Lesa meira

true

Meta þátttöku í nemendagörðum sem “óásættanlega áhættu”

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram minnisblað um fjárhagslega áhættu við aðkomu sveitarfélagsins að uppbyggingu nemendagarða við LbhÍ á Hvanneyri, en ósk hefur borist um þátttöku sveitarfélagsins í framkvæmdinni. Í minnisblaðinu er rakin fjárhagsleg áhættu sveitarfélagsins vegna framkvæmdarinnar og framlagningar á stofnfjárframlagi. „Því miður er það mat byggðarráðs að það fyrirkomulag sem…Lesa meira

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét komust áfram í Idol

Annar þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Uppselt var í sal á annað úrslitakvöldið eins og það fyrsta en um 500 manns komast að í salnum. Þema kvöldsins í þættinum var 80’s lög eða lög frá níunda áratugnum. Sex keppendur…Lesa meira

true

Lífið er núna – landsátak Krafts mun standa til 12. febrúar

Fjáröflunar- og vitundarvakning Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hófst með pompi og prakt í Hörpu í gær. Á annað þúsund manns komu saman og perluðu ný „Lífið er núna“ armbönd og sáu perlupartýparið Eva Ruza og Hjálmar um að halda öllum í stuði ásamt fjölmörgum listamönnum sem komu…Lesa meira

true

Stór sameining í undirbúningi í verslanageiranum

Könnunarviðræður eru hafnar um mögulegt samstarf eða samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar ásamt dótturfélögum. Þetta er gert að beiðni Skel fjárfestingafélags hf. „Það er mat stjórnar Samkaupa að með mögulegu samstarfi eða samruna eins eða fleiri félaga felist möguleikar sem geti stutt við framtíðaráætlanir félagsins. Samkaup hefur áður upplýst um áform sín um skráningu á…Lesa meira

true

Hiti gæti leynst í jörð við Borgarnes

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar 18. desember síðastliðinn var tekin fyrir beiðni frá Veitum um framkvæmdaleyfi fyrir borun svokallaðra hitastigulshola nálægt Borgarnesi. Til stendur að bora níu holur sem verða 60 til 100 m djúpar og markmið þessara borana er að kanna hvort lághitakerfi leynist í berggrunninum við Borg á Mýrum. Landeigandi á viðkomandi svæði auk…Lesa meira