Háskólinn á Akureyri. Ljósm. akureyri.net/ Þorgeir Baldursson

Starfsmenn þriggja háskóladeilda á Akureyri mótfallnir sameiningu við Háskólann á Bifröst

Akademískir starfsmenn þeirra þriggja deilda við Háskólann á Akureyri, sem sameining við Háskólann á Bifröst hefði mest áhrif á, lýsa miklum efasemdum um sameiningu og hvernig staðið er að málum. Skýrsla um mat á fýsileika sameiningar háskólanna er harðlega gagnrýnd. Það er fréttavefurinn akureyri.net sem greinir frá óánægju starfsmanna skólans. Vísað er til ályktana sem samþykktar voru á deildarfundum félagsvísindadeildar, viðskiptadeildar og lagadeildar Háskólans á Akureyri, en deildirnar þrjár sem starfræktar eru við Háskólann á Bifröst eru samsvarandi þessum. Ályktun viðskiptadeildar HA var samþykkt fyrir jól og rædd á Háskólaráðsfundi snemma árs en hinar tvær voru samþykktar á deildarfundum í síðustu viku og verða til umfjöllunar þegar Háskólaráð HA kemur saman í þessari viku.

Starfsmenn þriggja háskóladeilda á Akureyri mótfallnir sameiningu við Háskólann á Bifröst - Skessuhorn