Sexan stuttmyndakeppni 2024 er hafin

Fræðsluverkefni sem ber nafnið Sexan er á vegum Neyðarlínunnar. Um er að ræða stuttmyndakeppni fyrir nemendur í 7. bekk á landsvísu, til að fræða þau um stafrænt ofbeldi. „Krakkar í 7. bekk eiga semsagt að búa til þriggja mínútna stuttmynd um samþykki, nektarmynd, tælingu eða slagsmál ungmenna og skila inn til Neyðarlínunnar fyrir sunnudaginn 28. janúar nk. Þetta er í annað sinn sem við höldum keppnina, en markmiðið er að ungt fólk fræði ungt fólk um stafrænt ofbeldi. Vinningsmyndirnar verða sýndar á vef UngRÚV og sendar í alla grunnskóla á landinu sem fræðsluefni um stafrænt ofbeldi. Krakkar geta sent inn mynd í gegnum bekkinn sinn, félagsmiðstöð eða á eigin spýtur ef sá gállinn er á þeim,“ segir í tilkynningu.

Sexan stuttmyndakeppni 2024 er hafin - Skessuhorn