
Nettó er ein af þeim verslunum sem heyra undir Samkaupsverslanir, en nú er einnig verið að skoða sameinungu við Heimkaup, Orkuna, Heimkaup, Lyfjaval og fleiri. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Stór sameining í undirbúningi í verslanageiranum
Könnunarviðræður eru hafnar um mögulegt samstarf eða samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar ásamt dótturfélögum. Þetta er gert að beiðni Skel fjárfestingafélags hf. „Það er mat stjórnar Samkaupa að með mögulegu samstarfi eða samruna eins eða fleiri félaga felist möguleikar sem geti stutt við framtíðaráætlanir félagsins. Samkaup hefur áður upplýst um áform sín um skráningu á markað. Bæði félög hafa ráðið utanaðkomandi ráðgjafa sem munu leiða öflun gagna á meðan viðræðum stendur og tryggja að unnið sé samkvæmt ákvæðum samkeppnislaga,“ segir í tilkynningu frá Samkaupum.