
Keppendurnir á öðru úrslitakvöldi Idols. Ljósm. Stod2.is
Björgvin Þór og Jóna Margrét komust áfram í Idol
Annar þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Uppselt var í sal á annað úrslitakvöldið eins og það fyrsta en um 500 manns komast að í salnum. Þema kvöldsins í þættinum var 80’s lög eða lög frá níunda áratugnum.