
Loftmynd af svæðinu með holustaðsetningum. Einhverjar þurfti að færa lítillega til út frá aðgengi. Ljósm: Veitur.
Hiti gæti leynst í jörð við Borgarnes
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar 18. desember síðastliðinn var tekin fyrir beiðni frá Veitum um framkvæmdaleyfi fyrir borun svokallaðra hitastigulshola nálægt Borgarnesi. Til stendur að bora níu holur sem verða 60 til 100 m djúpar og markmið þessara borana er að kanna hvort lághitakerfi leynist í berggrunninum við Borg á Mýrum. Landeigandi á viðkomandi svæði auk Borgarbyggðar er Þjóðkirkjan og gáfu báðir aðilar fúslega leyfi sitt fyrir borun sem nú er hafin.