Feðgarnir Jón og Stefán eru Skagamenn ársins

Þorrablót Skagamanna fór fram í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum í gærkvöldi, en það var að þessu sinni í umsjón árgangs 1979. Uppselt var á blótið en einnig var hægt að kaupa miða í streymi og mæta á dansleik eftir að borðhaldi og skemmtiatriðum lauk. Veislustjórar voru Katrín Halldóra og Halli Melló og fóru þau á kostum. Ávarpið og Skagaskaupið var svo í umsjón árgangs 1983. Fleiri gestir stigu á svið og loks var það hljómsveitin Made in sveitin sá um danstónlistina fram á nótt.

Feðgarnir Jón og Stefán eru Skagamenn ársins - Skessuhorn