Á Hvanneyri eru flestar íbúðarhúsalóðir sem tilbúnar eru til úthlutunar hjá sveitarfélaginu. Ljósm. mm

Fjöldi lóða í Borgarbyggð tilbúnar til úthlutunar

Í nýlegri færslu á upplýsingasíðu Borgarbyggðar kemur fram að það er byggðarráð, í umboði sveitarstjórnar, sem annast úthlutun byggingalóða í sveitarfélaginu. Þar má nú finna samantekinn lista yfir allar lausar lóðir sem tilbúnar eru til úthlutunar í þéttbýli í sveitarfélaginu og eru alls 63 lóðir tilgreindar. Þær skiptast þannig; 36 atvinnuhúsalóðir, 14 einbýlishúsalóðir, sex raðhúsalóðir, sex parhúsalóðir og ein lóð fyrir fjölbýlishús.

Fjöldi lóða í Borgarbyggð tilbúnar til úthlutunar - Skessuhorn