Fréttir

true

Ók á 144 km/klst

Lögregla þurfti að hafa afskipti af þrjátíu ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 144 km/klst. Því til viðbótar voru teknar myndir af 96 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Þá voru höfð afskipti af nokkrum ökumönnum sem voru ekki með beltin spennt og/eða…Lesa meira

true

Stórskrítið veiðisumar á enda runnið og ýmsar tegundir í boði í ánum

Farið yfir veiðina í helstu ám Vesturlands „Veiðin gekk vel hjá okkur í sumar. Það veiddust 146 laxar og 231 bleikja. Auk þess veiddust nokkrir eldislaxar,“ sagði Sæmundur Kristjánsson þegar við spurðum um Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum og hvernig veiðin gekk í sumar. En skrítið sumar er nú á enda í veiðinni, hægt var…Lesa meira

true

Þessi hrygna átti bara eftir að hrygna

Síðastliðinn laugardag var boðað til mótmælafundar á Austurvelli í Reykjavík, eins og sagt var frá hér á vefnum um helgina. Að honum stóðu bændur, landeigendur og náttúruverndarsinnar, sem segjast vera orðnir langþreyttir á skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart náttúrunni og villta íslenska laxastofninum. Umhverfisráðherra voru afhent mótmæli en dagskránni lauk með gjörningi þar sem eldislaxar, sem veiddir…Lesa meira

true

Búið er að slökkva eld í bíl í Hvalfjarðargöngum – engan sakaði

Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er nú búið að slökkva eld sem kom upp í fólksbíl í Hvalfjarðargöngum laust fyrir klukkan 16 í dag. Viðbragðsáætlun var virkjuð á hæsta forgangi eins og reglur kveða á um þegar eldur verður í jarðgöngum. Viðbragðsaðilar komu jafnt af höfuðborgarsvæðinu og frá Akranesi. Viðbragðsáætlun hefur nú verið afturkölluð. Umferð verður hleypt…Lesa meira

true

Gul viðvörun frá því seint í kvöld vegna hvassviðris og snjókomu

Frá því klukkan 23 í kvöld og til hádegis á morgun er í gildi gul viðvörun á Faxaflóasvæðinu. Það verður austan- og síðar norðaustan hvassviðri með vindhraða á bilinu 10-18 m/s, hvassast á sunnanverðu Snæfellsnesi. Búast má við talsverðri snjókomu á sunnanverðu svæðinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar…Lesa meira

true

Eldur í bíl í Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng eru nú lokuð, en eldur kom upp í bíl þar laust fyrir klukkan 16 í dag. Mikill viðbúnaður er vegna þessa, en engar nánari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að göngin verði lokuð um óákveðinn tíma og bent á hjáleið um Hvalfjörð.Lesa meira

true

,,Kennslan var það sem hafði alltaf vantað í líf mitt“

Rætt við kennarann, blómaskreytinn og tónlistarmanninn Heimir Eyvindarson sem nýlega hóf störf sem skólastjóri við grunn- og tónlistarskólann í Stykkishólmi Heimir Eyvindarson er nýráðinn skólastjóri Grunnskóla Stykkishólms og Tónlistarskóla Stykkishólms. Heimir er Sunnlendingur að uppruna og býr í Hveragerði ásamt eiginkonu sinni Söndru Sigurðardóttur og börnum þeirra. Hann er hvað þekktastur fyrir hljómborðsleik í hljómsveitinni…Lesa meira

true

Grímur AK aflahæsti strandveiðibáturinn yfir landið

Landssamband smábátaeigenda hefur tilkynnt eigendum Gríms AK að þeir hafi verið aflahæstir á strandveiðum sumarsins. Skipstjóri á Grími er Árni Freyr Stefánsson en honum til halds og trausts um borð er Stefán Jónsson faðir hans og fyrrum skipstjóri. Aflaverðmætið á Grími í sumar var rúmar 14 milljónir króna og lönduðu þeir feðgar um 48 tonnum…Lesa meira

true

Bólusetningar að hefjast á heilsugæslustöðvunum

Á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands eru nú að hefjast bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19. Fram kemur í auglýsingu frá HVE, sem birt er í Skessuhorni í dag, að bólusetning við inflúensu er einungis í boði fyrir forgangshópa, þ.e. 60 ára og eldri, en fyrir 60 ára og yngri með undirliggjandi sjúkdóma; (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki,…Lesa meira