Fréttir

true

Marko Vardic til liðs við Skagamenn

Slóvenski knattspyrnumaðurinn Marko Vardic hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍA og gildir samningurinn út leiktíðina 2025. Vardic kemur úr röðum Grindvíkinga þar sem hann lék 30 leiki með liðinu á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk. Marko er 28 ára og var kjörinn besti leikmaður Grindvíkinga á síðustu leiktíð. Hann getur…Lesa meira

true

Nokkrar skemmdir á bifreiðum í síðustu viku

Nokkur umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni en öll án teljandi meðsla á fólki. Meðal annars voru þrír ungir einstaklingar að aka hlaupahjóli þegar þeir óku utan í bifreið. Einstaklingarnir létu sig hverfa af vettvangi en bifreiðin hlaut smávægilegan skaða af og er málið í rannsókn. Einnig tjónuðust tvær bifreiðar þegar…Lesa meira

true

Veiðiréttarhafar samþykktu samhljóða harðorða ályktun

Í dag voru fulltrúar allra veiðifélaga í Borgarfirði boðaðir til fundar í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Tilefnið var að ræða viðbrögð við þeirri vá sem menn telja vera af erfðablöndun eldislax eftir slysasleppingu í Patreksfirði í sumar fyrir íslenska villta stofninn. Á fundinum fór Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur yfir möguleg áhrif erfðablöndunar, sýndi tölur um veiði…Lesa meira

true

Á tímabili voru fimm bílar utan vegar

Hávaða norðan rok var á þjóðveginum við Hafnarfjall í dag. Um tíma í morgun var vegurinn lokaður fyrir umferð, en opnaður aftur í kringum hádegið. Margir ökumenn lentu í vandræðum og þegar ekið var um veginn á öðrum tímanum í dag voru alls fimm bílar utan vegar. Fjórir þeirra höfðu hafnað utan vegar á hjólunum…Lesa meira

true

Festust í bifreið í Leirá

Björgunarfélag Akraness var kallað út ásamt lögreglu þegar bifreið, sem notuð var til að ferja erlenda veiðimenn, festist í Leirá á mánudaginn. Vatnsrennsli hafði aukist töluvert í ánni frá frá því um morguninn vegna mikillar úrkomu. Allir komust ferðalangarnir heilir á land. Vatn flæddi inn í bifreiðina sem var dregin upp úr ánni með aðstoð…Lesa meira

true

Tímabært að huga að dekkjabúnaði fyrir veturinn

Umhleypingar hafa verið í veðrinu undanfarna daga og gular viðvaranir verið í gildi um tíma. Á mánudag rigndi heil ósköp og snerist svo í hvassa norðan átt um kvöldið og aðfararnótt þriðjudags. Um norðanvert landið snjóaði niður í byggð og færð gerðist varhugaverð fyrir illa búna bíla á fjallvegum. Meðfylgjandi mynd sýnir lögregluna á Akranesi…Lesa meira

true

Gömul hús í Stykkishólmi

Þegar ritstjórn Skessuhorns ákvað að gera umfjallanir um gömul hús á Vesturlandi, kom ekki annað til greina en að leita til Sturlu Böðvarssonar um upplýsingar um húsin í Stykkishólmi. Sturla var í tvígang bæjarstjóri Stykkishólms, en í upphafi starfsferils síns þar á áttunda áratugnum var tekin ákvörðun um markvisst viðhald eldri húsa í bænum. Reyndist…Lesa meira

true

Óku undir áhrifum

Einn ökumaður var grunaður um ölvun við akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið en tveir voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra reyndist auk þess ekki með gild ökuréttindi og er einnig grunaður um vörslu fíkniefna sem voru haldlögð.Lesa meira

true

Víða um landið er vetrarfærð – ófært við Hafnarfjall

Vetrarfærð er víðs vegar um landið. Hringvegur 1 við Hafnarfjall er nú lokaður vegna veðurs. Hálka, krapi eða snjóþekja er á öllum öðrum leiðum á Vesturlandi. Greiðfært er um Kjalarnes, en ófært um Hellisheiði, svo dæmi séu tekin. Fólk er hvatt til að fylgjast með tíðindum af færð á umferdin.isLesa meira

true

Vel gekk að slökkva í fólksbíl í Hvalfjarðargöngum

Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að vel hafi gengið að slökkva eld í fólksbíl sem kviknaði í í Hvalfjarðargöngunum kl. 15:49 í gær. Þrír voru í bílnum og komust allir greiðlega út, engan sakaði.  Bíllinn var á suðurleið kominn nokkuð á veg upp frá botni ganganna þegar kviknaði skyndilega í honum. Göngunum var umsvifalaust…Lesa meira