Bleik hús eru ekki á hverju strái en liturinn kemur einstaklega vel út á þessu fallega húsi. Frásögn og ljósm. Steinunn Þorvaldsdóttir

Gömul hús í Stykkishólmi

Þegar ritstjórn Skessuhorns ákvað að gera umfjallanir um gömul hús á Vesturlandi, kom ekki annað til greina en að leita til Sturlu Böðvarssonar um upplýsingar um húsin í Stykkishólmi. Sturla var í tvígang bæjarstjóri Stykkishólms, en í upphafi starfsferils síns þar á áttunda áratugnum var tekin ákvörðun um markvisst viðhald eldri húsa í bænum. Reyndist það farsæl ákvörðun sem berlega sést nú þegar farið er um bæjarfélagið. Hluti þeirra húsa sem Sturla nefnir sérstaklega til sögunnar eru hér á meðfylgjandi myndum.