Svipmynd af fundinum sem fór fram á loftinu á Landnámssetrinu. Sveinbjörn Eyjólfsson og Einar Óli Pedersen stýrðu fundinum. Ljósm. mm

Veiðiréttarhafar samþykktu samhljóða harðorða ályktun

Í dag voru fulltrúar allra veiðifélaga í Borgarfirði boðaðir til fundar í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Tilefnið var að ræða viðbrögð við þeirri vá sem menn telja vera af erfðablöndun eldislax eftir slysasleppingu í Patreksfirði í sumar fyrir íslenska villta stofninn. Á fundinum fór Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur yfir möguleg áhrif erfðablöndunar, sýndi tölur um veiði á frjóum eldislaxi og svaraði fyrirspurnum. Þeir Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnumálanefndar Alþingis og Bjarni Jónsson formaður umhverfis- og samgöngunefndar mætti á fundinn auk Gunnars Arnar Petersen, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga. Í lok fundar var samþykkt samhljóða áskorun til stjórnvalda þar sem skorað er á matvælaráðherra, ríkisstjórn Íslands og Alþingi að banna nú þegar eldi í opnum kvíum í sjó, í óbreyttri mynd, áður en meira tjón hlýst af.