Þykkan svartan reyk leggur úr suðurmunna ganganna. Ljósm. Guðmundur Rúnar Hjörleifsson

Eldur í bíl í Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng eru nú lokuð, en eldur kom upp í bíl þar laust fyrir klukkan 16 í dag. Mikill viðbúnaður er vegna þessa, en engar nánari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að göngin verði lokuð um óákveðinn tíma og bent á hjáleið um Hvalfjörð.