
Bólusetningar að hefjast á heilsugæslustöðvunum
Á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands eru nú að hefjast bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19. Fram kemur í auglýsingu frá HVE, sem birt er í Skessuhorni í dag, að bólusetning við inflúensu er einungis í boði fyrir forgangshópa, þ.e. 60 ára og eldri, en fyrir 60 ára og yngri með undirliggjandi sjúkdóma; (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdóma, aðra ónæmisbælandi sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur. Einnig fyrir 6 mánaða börn og eldri. Bólusetning fyrir Covid-19 er fyrir 18 ára og eldri, eða frá 5 ára samkvæmt læknisráði á einstaklingsgrundvelli.
Tímabókanir í bólusetningu eru á heilsugæslustöðvum HVE á Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Ólafsvik, Stykkishólmi, Hólmavík og Hvammstanga.